Kínverska félagið Dalian Yifang hefur keypt Marek Hamsik fyrirliða Napoli í sínar raðir á 20 milljónir evra.
Félagaskiptin hafa legið í loftinu undanfarna daga og Aurelio De Laurentiis forseti Napoli staðfesti þau í dag.
Félagaskiptin hafa legið í loftinu undanfarna daga og Aurelio De Laurentiis forseti Napoli staðfesti þau í dag.
„Ég óska Marek Hamsik hamingju í Kína. Dyrnar standa alltaf opnar fyrir hann hér," sagði De Laurentiis.
Hinn slóvakíski Hamsik er leikjahæstur og markahæstur í sögu Napoli en hann hefur verið hjá félaginu síðan 2007.
Á þeim tíma hefur hinn 31 árs gamli Hamsik skorað 121 mark í 520 leikjum.
Athugasemdir