Afturelding hefur ákveðið að semja við argentínska varnarmanninn Ivan Moran sem að hefur æft með liðinu undanfarna daga.
Ivan kom til landsins í byrjun mánaðarins og hefur síðan þá verið til skoðunar hjá Aftureldingu.
Ivan er 26 ára gamall en hann hefur á ferli sínum lengst af leikið í heimalandi sínu Argentínu en hann hefur þó einnig leikið í Grikklandi og í úrvalsdeildinni í Gíbraltar.
„Afturelding fagnar komu Ivan og bindur miklar vonir við hann fyrir komandi tímabil," segir á Facebook-síðu Aftureldingar.
Afturelding steinlá gegn Val í Lengjubikarnum í gær, 6-0, en Ivan lék allan tímann í hjarta varnarinnar.
Athugasemdir