Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 14. mars 2020 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Íþróttahreyfingin vinnur saman í samkomubanninu
Mynd: UMFÍ
Mynd: UMFÍ
Ungmennafélag Íslands, UMFÍ, og Íþróttasamband Íslands, ÍSÍ, eru í nánu samstarfi vegna kórónaveirunnar sem herjar á landsmenn um þessar mundir.

„Við finnum að það sem vefst fyrir mörgum félögum er oft á tíðum flókin úrvinnsla og samhæfing til þess að geta boðið upp á æfingar miðað við þær forsendur og aðstæður sem þær geta farið fram undir í ljósi tilkynninga dagsins. Fólk er einfaldlega að vinna í því að láta púsluspilið ganga upp. Sú vinna heldur áfram um helgina,‟ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.

Hún og Líney Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ, hafa fundað stíft í dag með ráðamönnum og Almannavörnum í kjölfar þess að stjórnvöld virkjuðu heimildir sóttvarnarlaga til að takmarka samkomur á Íslandi.

Í þeim felst sú fordæmalausa aðgerð að takmarkanir eru settar á allar skipulagðar samkomur vegna farsóttar, þ.e. samkomubann sem tekur gildi á miðnætti á sunnudagskvöld til næstu fjögurra vikna. Samkomubannið felur í sér að ekki verði fleiri en 100 einstaklingar staddir í sama tíma í sama rými auk fleiri kvaða. Samkomubannið nær til allra skipulagðra viðburða á borð við skólastarf, íþróttaviðburði, íþróttaæfingar og til starfsemi íþróttahúsa. Ljóst er því að samkomubannið mun hafa mikil áhrif á rekstur ungmenna- og íþróttafélaga.

„Ég upplifi mikla samstöðu innan íþróttahreyfingarinnar og vil hrósa ÍSÍ, sérsamböndum og íþróttahéruðum ásamt aðildarfélögum þeirra fyrir samstarfið í málinu. Við finnum fyrir miklum vilja hjá hverjum og einum til að leggja sitt af mörkum í baráttunni við veiruna.

„Félögin eru full af keppnisfólki sem nú beinir kröftum sínum frá einstökum íþróttagreinum yfir í baráttu fyrir heilsu þjóðarinnar. Þá baráttu getum við einungis tekist á við saman til að ná árangri og ég upplifi að þar séum við öll í sama liði."


Hægt er að skoða vefsíðu UMFÍ fyrir frekari upplýsingar.
Athugasemdir
banner
banner
banner