Donald Trump forseti Bandaríkjanna birti færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social þar sem hann sagðist ekki telja það æskilegt að Íran myndi senda landsliðið sitt til leiks á HM sem verður haldið í Norður-Ameríku næsta sumar.
Íran var meðal fyrstu þjóða til að vinna sér inn þátttökurétt á heimsmeistaramótinu og er í riðli með Egyptalandi, Belgíu og Nýja-Sjálandi sem á allur að fara fram á bandarískri grundu.
Bandaríkin standa þessa stundina í stríði við Íran eftir að hafa myrt leiðtoga landsins og aðra embættissmenn með sprengjuárásum á síðasta degi febrúarmánaðar.
„Íranska landsliðinu er velkomið að taka þátt í heimsmeistaramótinu, en mér finnst það samt ekki æskilegt útaf því að ég óttast um öryggi leikmanna liðsins," skrifaði Trump á Truth Social.
Íranir hafa svarað þessari færslu frá Trump þar sem þeir segja að FIFA sé með ákvörðunarréttinn á HM, ekki Bandaríkin eða nein önnur þjóð.
„Íranska landsliðið var eitt af þeim fyrstu til að tryggja sér þáttöku á HM með frábærum árangri innan vallar. Það getur enginn fjarlægt íranska landsliðið af HM," segir í tilkynningu frá írönsku ríkisstjórninni, sem hefur frá upphafi stríðsins sagst vera smeyk við að senda landsliðið sitt til Bandaríkjanna.
„Þjóðin sem ætti að vera fjarlægð er frekar sú sem er titluð sem gestgjafi mótsins en hefur ekki getuna til að tryggja öryggi keppenda."
Fyrr í vikunni sagði Ahmad Donyamali, íþróttamálaráðherra Íran, að það væri fráleitt að ætlast til þess að Íran myndi senda landsliðið sitt til Bandaríkjanna.
„Í ljósi þess að þessa spillta ríkisstjórn hefur myrt leiðtoga okkar þá teljum við aðstæður ekki bjóða upp á þátttöku okkar á heimsmeistaramótinu. Strákarnir okkar eru ekki öruggir."
Óljóst er hvaða þjóð myndi taka sæti Íran á lokamótinu ef ríkisstjórnin ákveður að senda ekki lið til leiks.
11.03.2026 10:43
Trump sagði Infantino að Íran væri velkomið á HM
Athugasemdir



