Fotbolti.net
14.04.18 - 18:40
Gunnar Logi Gylfason

Wolves upp í úrvalsdeildina (Staðfest)

Liðsmenn og stuðningsmenn Wolverhampton Wanderes hafa ástæðu til að fagna í dag

Liðsmenn og stuðningsmenn Wolverhampton Wanderes hafa ástæðu til að fagna í dag

Canon

Mynd: Getty Images

Wolverhampton Wanderers spilar í deild þeirra bestu á Englandi á næsta tímabili. Þetta varð ljóst eftir að Fulham mistókst að vinna Brentford í kvöld.

Fulham er þá tíu stigum á eftir Wolves en eiga aðeins þrjá leiki eftir.

Wolves hafa verið á toppnum mest allt tímabilið og er líklegt að liðið endar á toppnum.

Cardiff á möguleika á að sigra deildina en þó eru níu stig á milli Cardiff og Wolves og aðeins fjórir leikir eftir.

Wolves spilaði síðast í úrvalsdeildinni tímabilið 2011-2012 en þá rak liðið lestina með 25 stig og aðeins fimm sigra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.