Fotbolti.net
14.04.26 - 22:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti

Auglýsing
Cecilía í leiknum.

Cecilía í leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
„Þetta eru ótrúlega mikilvæg þrjú stig. Kannski ekki fallegasti fótboltaleikurinn en við sigldum þessu heim," sagði markvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir eftir 1-0 sigur gegn Úkraínu í undankeppni HM í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 0 Úkraína
Það var ekki mikið hjá Cecilíu, sem spilar með Inter á Ítalíu, að gera í leiknum, en hún varði einu sinni mjög vel í fyrri hálfleik þegar sóknarmaður Úkraínu slapp í gegn.

„Ég er vön þessu stundum úti að það er ekkert að gera en svo kemur bara eitt færi og ég verð að vera tilbúin í það sem markvörður," sagði Cecilía.

„Það kallar á sterkan haus. Kannski kemur eitt skot á 90 mínútu og þá verð ég að vera tilbúin. Þetta var þannig leikur."

Um færið í fyrri hálfleiknum sagði hún: „Þetta gerðist mjög hratt. Ég droppaði niður og reyndi að lesa hana."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.