Atlético Madríd og Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eru komin áfram í undanúrslit Meistaradeildarinnar en Barcelona og Liverpool eru úr leik.
Barcelona og Liverpool fengu bæði það erfiða verkefni að koma til baka eftir að hafa tapað fyrri leikjunum 2-0.
Liverpool fékk PSG í heimsókn á Anfield en Ousmane Dembele gat gert út um einvígið á 17. mínútu leiksins er hann fékk skoppandi bolta fyrir sig en skaut hátt yfir markið.
Heimamenn urðu fyrir svakalegu áfalli er franski framherjinn Hugo Ekitike meiddist og þurfti að fara af velli. Við fyrstu sýn virðist hann slíta hásin sem gæti haldið honum lengi frá keppni.
Mohamed Salah kom inn á í hans stað og stuttu síðar var Liverpool hársbreidd frá því að komast yfir. Milos Kerkez átti skot sem rússneski markvörðurinn Matvey Safonov varði til hliðar. Virgil van Dijk mætti í frákastið og var aðeins hársbreidd frá því að setja boltann í netið en Marquinhos var með varnarleik á heimsmælikvarða. Risastórt augnablik í leiknum sem hefði getað skipt sköpum.
Staðan í hálfleik markalaus en það kom eitt umdeilt atvik í þeim síðari, annað augnablik sem gat breytt leiknum. Willian Pacho keyrði inn í Alexis Mac Allister í teignum og benti dómarinn á vítapunktinn.
Honum var hins vegar ráðlegt að fara að VAR-skjánum sem hann gerði. Hann tók ákvörðun sína til baka eftir að hafa skoðað atvikið í þaula.
Sjö mínútum síðar komust gestirnir yfir. Boltanum var komið út á vinstri vænginn og þaðan á Dembele sem fékk boltann rétt fyrir utan teig, tók eina gabbhreyfingu áður en hann stýrði boltanum neðst í vinstra hornið.
Í byrjun uppbótartímans kláraði Dembele síðan dæmið eftir að Dominik Szoboszlai missti boltann við miðjuna. Boltanum komið inn á Bradley Barcola sem lagði hann til hliðar á Dembele sem gerði annað mark sitt í leiknum. Allt í molum hjá Liverpool-mönnum og Anfield ekki alveg sama gryfjan og hún var þegar Jürgen Klopp var við stjórnvölinn.
Evrópumeistararnir of stór biti fyrir Liverpool og eru lærisveinar Arne Slot úr leik. Þeir setja nú alla einbeitingu á að ná Meistaradeildarsæti í ensku úrvalsdeildinni. PSG mun mæta Bayern München eða Real Madrid í undanúrslitum.
Sigur Barcelona dugði ekki til í Madríd
Spánarmeistarar Barcelona eru úr leik í Meistaradeildinni þrátt fyrir 2-1 sigur á Atlético Madríd í Madríd í kvöld.
Atlético vann fyrri leikinn 2-0 og þurfti því Barcelona að eiga sinn besta leik til þess að komast aftur inn í einvígið og lofaði það góðu hjá þeim í byrjun leiks.
Lamine Yamal skoraði á 4. mínútu eftir stoðsendingu Ferran Torres og tuttugu mínútum síðar skoraði Ferran sjálfur. Góð vika hjá honum, en hann skoraði einnig tvennu gegn Espanyol um helgina.
Sjö mínútum síðar skoraði Ademola Lookman fyrir Atlético eftir hraða sókn. Marcos Llorente fékk boltann hægra megin, kom með frábæra sendingu inn á teiginn á Lookman sem setti boltann framhjá Joan Garcia í markinu.
Í byrjun síðari hálfleiks var mark tekið af Ferran Torres vegna rangstöðu og tuttugu mínútum síðar fækkaði í liði Börsunga er varnarmaðurinn Eric Garcia sá rauða spjaldið. Annar leikurinn í rauð þar sem Barcelona missir varnarmann af velli.
Á lokasekúndum leiksins fékk Ronaldo Araujo dauðafæri til þess að koma Börsungum í framlengingu en skalli hans rataði ekki á markið.
Enn ein vonbrigðin fyrir Barcelona sem er úr leik en Atlético komið áfram og mun mæta annað hvort Arsenal eða Sporting í undanúrslitum.
Atletico Madrid 1 - 2 Barcelona (3-2, samanlagt)
0-1 Lamine Yamal ('4 )
0-2 Ferran Torres ('24 )
1-2 Ademola Lookman ('31 )
Rautt spjald: Eric Garcia, Barcelona ('79)
Liverpool 0 - 2 Paris Saint Germain (0-4, samanlagt)
0-1 Ousmane Dembele ('72 )
0-2 Ousmane Dembele ('90 )




