14.05.17 - 12:55
Kristófer Kristjánsson
England: Hull er fallið úr ensku úrvalsdeildinni (Staðfest)

Michael Dawson, varnarmaður Hull, hryggur eftir leikinn

Mynd: Getty Images

Crystal Palace 4 - 0 Hull City
1-0 Wilfred Zaha (\'3 )
2-0 Christian Benteke (\'34 )
3-0 James McArthur (\'85 , víti)
4-0 Patrick van Aanholt (\'90 )
1-0 Wilfred Zaha (\'3 )
2-0 Christian Benteke (\'34 )
3-0 James McArthur (\'85 , víti)
4-0 Patrick van Aanholt (\'90 )
Crystal Palace tók á móti Hull í gríðarlega mikilvægum leik í ensku úrvalsdeildinni í dag en gestirnir þurftu að vinna til að eiga möguleika á að bjarga sæti sínu í deildinni.
Það var því skellur þegar heimamenn komust yfir strax á þriðju mínútu með marki frá Wilfred Zaha sem hefur átt mjög gott tímabil. Andrea Ranocchia gerði hrikaleg mistök í aðdragandanum.
Það bættist grátt ofan á svart fyrir Hull þegar Christian Benteke tvöfaldaði forystuna eftir rúman hálftíma með skalla áður en James McArthur skoraði af vítapunktinum og Patrick van Aanholt kláraði leikinn, lokatölur 4-0.
Stuðningsmenn Crystal Palace ærðust af fögnuði í leikslok en sigurinn hélt þeim endanlega upp á meðan Hull þarf að bíta í það afar súra epli að falla niður um deild. Hull fylgir Middlesbrough og Sunderland niður.