14.05.17 - 12:41
Kristófer Kristjánsson
Harrison Hanley í Hauka (Staðfest)

Haukar eru að fá liðsstyrk

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukar eru að fá liðsstyrk

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bandaríski framherjinn Harrison Hanley er genginn til liðs við Hauka og mun hann spila með þeim í Inkasso deildinni í sumar.
Hanley er 25 ára en hann lék með Njarðvík í 2. deildinni í fyrra sumar þar sem hann skoraði sjö mörk í 21 deildarleik.
Haukar hafa nú þegar Björgvin Stefánsson og Elton Barros í sterkri framlínu sinni og hafa nú bætt í hópinn.
Haukar hafa farið ágætlega af stað í Inkasso deildinni í sumar en liðið vann Þrótt í fyrstu umferð áður en það gerði 2-2 jafntefli í Laugardalnum gegn Fram síðastliðinn föstudag.