14.05.18 - 11:00
Magnús Már Einarsson
Anton Freyr aftur í Leikni R. á láni (Staðfest)

Anton í baráttunni í leik með Leikni í undanúrslitum bikarsins í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton í baráttunni í leik með Leikni í undanúrslitum bikarsins í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir R. hefur fengið miðjumanninn Anton Frey Ársælsson á láni frá Fjölni. Anton þekkir til í efra Breiðholtinu því hann var á láni hjá Leikni síðari hlutann á síðasta tímabili.
Hinn 22 ára gamli Anton skoraði tvö mörk í átta leikjum með Leikni í fyrra.
Árið 2016 var Anton á láni hjá Hugin fyrri hluta sumars og Aftureldingu síðari hlutann.
Leiknismenn eru án stiga eftir tvær umferðir í Inkasso-deildinni en næsti leikur liðsins er gegn Fram á Laugardalsvelli á föstudaginn.

Toni mættur aftur í Breiðholtið. Þökkum @Fjolnir_FC fyrir lánið. Við munum hugsa vel um hann í sumar. pic.twitter.com/5vHtjsKVIu
— Leiknir Reykjavík FC (@LeiknirRvkFC) May 13, 2018