Fotbolti.net
14.05.18 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Gerrard fær Arfield til Rangers (Staðfest)

Scott Arfield í leik með Burnley.

Scott Arfield í leik með Burnley.

Canon

Mynd: Getty Images

Skoska félagið Rangers hefur samið við Scott Arfield miðjumann Burnley en hann kemur frítt til félagsins í sumar.

Hinn 29 ára gamli Arfield hefur ekki verið í myndinni hjá Burnley undanfarnar vikur og hann fer nú til Rangers þegar hann verður samningslaus í sumar.

Arfield er fyrsti leikmaðurinn sem Steven Gerrard, nýráðinn stjóri Rangers, fær til félagsins.
„Ég er ánægður með að hafa bætt Scott Arfield við hópinn fyrir næsta tímabil,\" sagði Gerrard.

„Scott er sá fyrsti sem kemur og ég hlakka til að vinna með honum og öðrum leikmönnum sem koma til með að styrkja hópinn.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.