14.05.18 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Roberto Mancini tekinn við landsliðinu (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska knattspyrnusambandið er búið að staðfesta að Roberto Mancini mun stýra landsliðinu næstu árin.
Roberto Fabbricini, framkvæmdastjóri sambandsins, segist hlakka til framtíðarinnar með Mancini við stjórnvölinn.

„Mancini hefur oft lýst yfir vilja sínum til að taka við landsliðinu og hefur sannað sig á stóra sviðinu oftar en einu sinni, bæði sem leikmaður og þjálfari. Það gleður okkur að staðfesta hann sem næsta landsliðsþjálfara,\" sagði Fabbricini við fréttamenn.
„Hann hafnaði risastórum tveggja ára samningi í Rússlandi til að taka við landsliðinu.\"
Mancini hefur á ferli sínum unnið til fjölda verðlauna bæði sem leikmaður og þjálfari. Íslendingar þekkja hann best frá tíma sínum hjá Manchester City þar sem hann vann FA bikarinn 2011 og úrvalsdeildina 2012. Þá vann hann ítölsku deildina þrjú ár í röð með Inter, í fjarveru Juventus.