Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 14. maí 2019 10:21
Arnar Daði Arnarsson
Björgólfur Takefusa í KV (Staðfest)
Björgólfur Takefusa í leik með Fram sumarið 2014.
Björgólfur Takefusa í leik með Fram sumarið 2014.
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Sóknarmaðurinn, Björgólfur Takefusa hefur gengið í raðir KV í 3. deildinni.

Björgólfur, sem er 39 ára, lék einn leik með Ármanni í Mjólkurbikarnum á síðasta tímabili en síðustu deildarleikir Björgólfs voru með Þrótti í 1. deildinni sumarið 2014.

Það sama sumar lék hann einnig átta leiki með Fram í Pepsi-deildinni.

Hann á 285 meistaraflokksleiki að baki og hefur skorað í þeim 123 mörk. Hann hefur leikið með liðum á borð við Val, Víking R., KR, Fylki og Þrótti R.

KV er með fullt hús stiga í 3. deildinni eftir tvær umferðir. Liðið mætir Einherja á laugardaginn á Vopnafirði í 3. umferðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner