Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. maí 2019 10:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Enska uppgjörið - 16. sæti: Southampton
Ralph Hasenhuttl er knattspyrnustjóri Southampton.
Ralph Hasenhuttl er knattspyrnustjóri Southampton.
Mynd: Getty Images
Nathan Redmond var bestur hjá Southampton.
Nathan Redmond var bestur hjá Southampton.
Mynd: Getty Images
Mark Hughes var rekinn í byrjun desember.
Mark Hughes var rekinn í byrjun desember.
Mynd: Getty Images
Danny Ings var markahæstur ásamt James Ward-Prowse með sjö mörk.
Danny Ings var markahæstur ásamt James Ward-Prowse með sjö mörk.
Mynd: Getty Images
James Ward-Prowse skoraði sjö mörk og var markahæstur ásamt Danny Ings.
James Ward-Prowse skoraði sjö mörk og var markahæstur ásamt Danny Ings.
Mynd: Getty Images
Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram á sunnudaginn. Í þessum lið, enska uppgjörið er farið yfir tímabilið hjá liðunum í ensku úrvalsdeildinni. Nú er komið að því að skoða gengi Southampton í vetur.

Tímabil Southampton var langt frá því að vera frábært, liðið náði sér aldrei almennilega á strik og var alltaf að berjast í neðri hlutanum. Gengið eftir áramótin var þó mun skárra en fyrir áramótin.

Mark Hughes tók við Southampton í mars 2018, hann stýrði liðinu ekki lengi þar sem hann var rekinn í byrjun desember eftir 2-2 jafntefli við Manchester United. Southampton hafði þá aðeins unnið einn sigur í deildinni og sat í fallsæti með níu stig.

Austurríkismaðurinn Ralph Hasenhuttl, fyrrum stjóri RB Leipzig var ráðinn nýr stjóri Southampton eftir að Hughes var rekinn. Southampton vann tvo leiki í desember eftir að Hasenhuttl tók við, gengi liðsins var talsvert betra eftir áramótin og þar náði liðið að safna nógu mikið af stigum til að halda sér uppi.

Liðið vann alls níu deildarleiki í vetur og sex þessara sigra komu eftir áramótin, Southampton mætti botnliði Huddersfield í lokaumferðinni þar sem niðurstaðan var 1-1 jafntefli.

Besti leikmaður Southampton á tímabilinu:
Englendingurinn Nathan Redmond var valinn bestur hjá Southampton, hann skoraði sex mörk í vetur og lagði upp fjögur.

Þessir sáu um að skora mörkin í vetur:
Danny Ings: 7 mörk.
James Ward-Prowse: 7 mörk.
Nathan Redmond: 6 mörk.
Shane Long: 5 mörk.
Pierre-Emile Hojbjerg: 4 mörk.
Stuart Armstrong: 3 mörk.
Charlie Austin: 2 mörk.
Yan Valery: 2 mörk.
Cedric Soares: 1 mark.
Ryan Bertrand: 1 mark.
Manolo Gabbiadini: 1 mark.
Mario Lemina: 1 mark.
Michael Obafemi: 1 mark.
Oriol Romeu: 1 mark.
Jack Stephens: 1 mark.
Matt Targett: 1 mark.

Þessir lögðu upp mörkin:
Nathan Redmond: 4 stoðsendingar.
Pierre-Emile Hojbjerg: 3 stoðsendingar.
Matt Targett: 3 stoðsendingar.
Cedric Soares: 2 stoðsendingar.
Stuart Armstrong: 2 stoðsendingar.
Charlie Austin: 2 stoðsendingar.
Danny Ings: 2 stoðsendingar.
Jan Bednarek: 1 stoðsending.
Steven Davis: 1 stoðsending.
Mario Lemina: 1 stoðsending.
Shane Long: 1 stoðsending.
Michael Obafemi: 1 stoðsending.
Josh Sims: 1 stoðsending.
Yan Valery: 1 stoðsending.
Maya Yoshida: 1 stoðsending.

Spilaðir leikir:
Nathan Redmond: 38 leikir.
Pierre-Emile Hojbjerg: 31 leikur.
Oriol Romeu: 31 leikur.
Stuart Armstrong: 29 leikur.
Shane Long: 26 leikir.
James Ward-Prowse: 26 leikir.
Alex McCarthy: 25 leikir.
Charlie Austin: 25 leikir.
Jan Bednarek: 25 leikir.
Ryan Bertrand: 24 leikir.
Danny Ings: 24 leikir.
Jack Stephens: 24 leikir.
Jannik Vestergaard: 23 leikir.
Yan Valery: 23 leikir.
Mario Lemina: 21 leikur.
Cedric Soares: 18 leikir.
Maya Yoshida: 17 leikir.
Mohamed Elyounoussi: 16 leikir.
Matt Targett: 16 leikir.
Wesley Hoedt: 13 leikir.
Manolo Gabbiadini: 12 leikir.
Angus Gunn: 12 leikir.
Josh Sims: 7 leikir.
Michael Obafemi: 6 leikir.
Sam Gallagher: 4 leikir.
Steven Davis: 3 leikir.
Callum Slattery: 3 leikir.
Fraser Forster: 1 leikur.
Tyreke Johnson: 1 leikur.
Kayne Ramsay: 1 leikur.

Hvernig stóð vörnin í vetur?
Vörnin var ekki góð, liðið fékk alls á sig 65 mörk. Aðeins fimm lið fengu á sig fleiri mörk en Southampton.

Hvaða leikmaður skoraði hæst í Fantasy Premier leauge í vetur?
Nathan Redmond fékk lang flest stigin í liði Southampton, alls 137 stig. Redmond var eins og fyrr segir valinn besti leikmaður liðsins á tímabilinu.

Í hvaða sæti spáði Fótbolti.net Southampton fyrir tímabilið?
Fótbolti.net spáði Southampton 14. sæti fyrir tímabilið, sú spá var ekki langt frá því að ganga eftir því eins og fyrr segir endaði liðið í 16. sæti.
Spáin fyrir enska - 14. sæti: Southampton

Fréttayfirlit: Hvað gerðist hjá Southampton á tímabilinu.
Mark Hughes: Gott stig gegn góðu liði
Mark Hughes rekinn frá Southampton (Staðfest)
Hasenhuttl nýr stjóri Southampton (Staðfest)
Magnaður árangur Hasenhuttl

Enska uppgjörið.
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16. Southampton.
17. sæti Brighton
18. sæti Cardiff
19. sæti Fulham
20. sæti Huddersfield
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner