Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 14. maí 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Höttur/Huginn fær króatískan framherja (Staðfest)
Mynd: Höttur/Huginn Facebook
Höttur/Huginn var að bæta króatíska framherjanum Ivan Antolek við leikmannahópinn hjá sér.

Ivan er 26 ára gamall og getur leikið á báðum köntum og sem sóknarmaður. Hann býr yfir miklum hraða.

Hann hefur komið víða við á ferlinum og meðal annars leikið í efstu deild í Kýpur og Slóveníu.

Höttur/Huginn hefur farið hægt af stað í 3. deildinni í ár og er óvænt án stiga eftir tvær fyrstu umferðirnar.
Athugasemdir
banner
banner