Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 14. maí 2021 10:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Öll innyfli og líffæri ósködduð - „Við gleðjumst yfir því"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er bara flottur," sagði Sindri Snær Magnússon, leikmaður ÍA, þegar fréttaritari sendi honum skilaboð í morgun.

Sindri liggur á sjúkrahúsi eftir að hafa brotið tvö rifbein í leiknum gegn FH í gærkvöldi.

„Er vaknaður eftir nótt á spítalanum og verð vonandi útskrifaður á næstu klukkutímum. Það væri gott að komast heim."

Talað var um innvortis blæðingar en Sindri Snær segir engar frekari skemmdir hafa orðið fyrir utan brotin rifbein. Innyfli og líffæri sluppu.

„Við gleðjumst yfir því."

Hvað verður gert í tveimur brotnum rifbeinum?

„Rifbeinin gróa og ég mæti fljótlega inn á aftur. Ég var loksins orðinn heill í ökklanum eftir erfiðan vetur en ég verð klár eftir nokkrar vikur," sagði Sindri sem gaf upp tímarammann 1-2 mánuðir án þess þó að vera með það á hreinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner