Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
   sun 14. maí 2023 22:01
Kjartan Leifur Sigurðsson
Oliver Ekroth: Sigurgangan gengur eins lengi og við viljum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður ótrúlega vel. Höldum enn of aftur hreinu og það er allt sem maður vill sem varnarmaður þannig að ég er ánægður." Segir Oliver Ekroth eftir frábæra frammistöðu sína í kvöld gegn FH í 2-0 sigri Víkinga.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  0 FH

Víkingar voru með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik en var í nauðvörn nær allan seinni hálfleikinn en náðu þó að halda hreinu.

„Við yfirspiluðum þá allan fyrri hálfleikinn. Þeir sátu til baka frekar aftarlega. Í seinni hálfleik pressa þeir aðeins hærra sem gerði okkur aðeins erfitt fyrir. Við vorum ekki upp á okkar besta og vorum of rólegir á boltanum. FH eru of góðir til þess að við getum spilað svoleiðis. Þeir eiga sín færi, Ingvar ver mjög vel."

Vörn Víkinga hefur verið frábær í upphafi móts. Eitt mark fengið á sig eftir sjö umferðir. Á sama tíma í fyrra voru mörkin fjortán talsins í marki Víkinga.

„Ég veit ekki hvað hefur breyst. Ég held að allir séu með betri skilning á því hvernig við spilum. Leikstíll okkar hefur líka breyst lítillega. Við gerum færri klaufaleg mistök í uppspli á okkar vallarhelmingi og það hjálpar."

Víkingur er með fullt hús stiga eftir sjö umferðir. Blikar unnu til dæmis fyrstu átta leikina í fyrra þegar þeir unnu titilinn mjög auðveldlega. Menn hljóta að spyrja sig hversu lengi þetta getur haldið áfram hjá Víkingum.

„Sigurgangan gengur eins lengi og við viljum. Ég held að við séum okkar helsti óvinur. Ef við höldum ekki einbeitingu eins og gerðist í seinni hálfleik í dag að þá fáum við á okkur of mörg færi.Ef okkur tekst að halda einbeitingu í 90 mínutur er erfitt að sigra okkur og skora mörk gegn okkur."

VIðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
Athugasemdir
banner