Fotbolti.net
14.05.26 - 17:45
Elvar Geir Magnússon

Bikardrátturinn: Einn Bestu deildar-slagur í 8-liða úrslitum

Bikardrátturinn: Einn Bestu deildar-slagur í 8-liða úrslitum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Í dag var dregið í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins en það var gert í beinni útsendingu í bikarmarkaþætti á RÚV 2. Gunnar Birgisson og Hörður Magnússon sáu um að draga

Helmingur liðanna í 8-liða úrslitum eru úr næstefstu deild og aðeins einn Bestu deildar-slagur á dagskrá. Íslandsmeistarar Víkings heimsækja ÍA.

8-liða úrslit:
ÍA - Víkingur
Fylkir - Grótta
Afturelding - Stjarnan
Ægir - Breiðablik
Leikirnir i 8-liða úrslitum verða 7. og 8. júní.

Í beinni

17:44Drættinum er lokið
Leikirnir i 8-liða úrslitum verða 7. og 8. júní.
17:43Ægir - Breiðablik
Blikar fara í Þorlákshöfnina.
17:43
Ægir fær heimaleik gegn Breiðabliki.
17:43Afturelding - Stjarnan
Garðbæingar fara í Mosó.
17:42
Afturelding fær heimaleik. Gunni Birgis dregur Mosó.
17:42Fylkir - Grótta
Lengjudeildarslagur. Rúnar Páll heimsækir Heimi Guðjóns.
17:42
Fylkir fær heimaleik
17:41ÍA - Víkingur
Höddi Magg dregur Víking Reykjavík gegn ÍA. Á Akranesi.
17:40Það er byrjað að hræra í skálinni
Gunnar Birgisson byrjar að draga og ÍA fær heimaleik...
17:39Handan við hornið
Það er búið að sýna úr öllum leikjum í bikarþættinum á RÚV svo það ætti að vera stutt í dráttinn...
17:37Viktor Jóns byrjaði á bekknum
Viktor Jónsson tryggði ÍA vítakeppni en hann var látinn byrja á bekknum í leiknum.

17:36Hér má sjá öll bikarmörkin frá því í gær
17:35ÍA vann Grindavík eftir vítakeppni
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

ÍA 2 - 2 Grindavík (5-4 í vítaspyrnukeppni)
1-0 Erik Tobias Tangen Sandberg ('16 )
1-1 Gunnleifur Orri Gunnleifsson ('90 )
1-2 Lárus Orri Ólafsson ('113 )
2-2 Viktor Jónsson ('120 )
Lestu um leikinn
17:34Afturelding var í stuði gegn Njarðvík í Lengjudeildarslag
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Afturelding 5 - 2 Njarðvík
1-0 Aron Elí Sævarsson ('11 )
2-0 Elmar Kári Enesson Cogic ('53 )
3-0 Bart Kooistra ('62 )
4-0 Óðinn Bjarkason ('68 )
5-0 Elmar Kári Enesson Cogic ('71 )
5-1 Felix Lima Santos ('83 )
5-2 Haraldur Smári Ingason ('92 )
Lestu um leikinn
17:33Íslandsmeistararnir unnu HK í Kórnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK 0 - 2 Víkingur R.
0-1 Valdimar Þór Ingimundarson ('72 )
0-2 Elías Már Ómarsson ('86 , víti)
Lestu um leikinn
17:31Bikarmeistararnir fengu skell!
Ríkjandi bikarmeistarar Vestra töpuðu illa á heimavelli gegn Gróttu en bæði lið eru í Lengjudeildinni. Þjálfari Vestra fékk rautt spjald fyrir mótmæli í hálfleik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri 0 - 4 Grótta
0-1 Grímur Ingi Jakobsson ('17 , víti)
0-2 Björgvin Brimi Andrésson ('35 )
0-3 Tristan Freyr Ingólfsson ('40 )
0-4 Tristan Freyr Ingólfsson ('43 )
Rautt spjald: Daniel Osafo-Badu, Vestri ('46) Lestu um leikinn
17:29Leiðinlegar fréttir frá Víkingi
17:28
Höddi Magg segir að frammistaða Blika hafi verið fagmannleg á meðan hann hafi ekkert áttað sig á hvað leikplan Sigurvins Ólafssonar hjá Þrótti hafi verið. Gunni Birgis hrósar hugarfari Blikaliðsins.
17:26Rosaleg tækling
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Örn Margeirsson varnarmaður Breiðabliks fékk rautt gegn Þrótti og verður í banni í 8-liða úrslitum. Hér má sjá viðtal við Viktor eftir leikinn en í fréttinni má einnig sjá þessa tæklingu sem gerði það að verkum að ÞÞÞ dómari lyfti upp rauða spjaldinu:
17:24Tíu Blikar unnu Þróttara
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur R. 1 - 2 Breiðablik
0-1 Davíð Ingvarsson ('45 )
0-2 Kristófer Ingi Kristinsson ('69 )
1-2 Sigurður Egill Lárusson ('94 )
Rautt spjald: Viktor Örn Margeirsson , Breiðablik ('55) Lestu um leikinn
17:23
Meðal þess sem skoðað var í umfjöllun um leik Stjörnunnar og KR var möguleg vítaspyrna sem KR hefði að mínu mati átt að fá í seinni hálfleik.
17:18Mörkin úr leiknum:

Stjarnan 2 - 1 KR
0-1 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('7 )
1-1 Emil Atlason ('11 )
2-1 Emil Atlason ('44 )
2-1 Aron Sigurðarson ('45 , misnotað víti)
Lestu um leikinn
17:17Viðtöl við þjálfarana eftir leikinn í Garðabænum
17:16Stjarnan sló KR út í stórleik 16-liða úrslitanna
17:14KA ekki nennt að leggja á sig vinnu
Hallgrímur Jónasson þjálfari KA segir að Ægir hafi átt skilið að fara áfram og segir að sitt lið hafi ekki nennt að leggja á sig nægilegt vinnuframlag. KA hafi ekki átt neitt skilið úr leiknum.
17:12Nú er verið að fjalla um sigur Ægis á KA
Þetta voru óvæntustu úrslit 16-liða úrslita Mjólkurbikarsins að mati Hödda Magg. KA varð bikarmeistari 2024 en Ægismenn eru í neðsta sæti Lengjudeildarinnar.

KA 1 - 2 Ægir
0-1 Harley Bryn Willard ('17 )
0-2 Nikola Kristinn Stojanovic ('23 )
1-2 Jakob Héðinn Róbertsson ('31 )
Lestu um leikinn
17:08Vildi heyra afsökunarbeiðni
Höddi Magg segir að hann hafi viljað heyra Jóa Kalla biðja stuðningsmenn FH afsökunar á þessari frammistöðu í dag.
17:07Tímabilið byrjar hræðilega hjá FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Agaleg frammistaða FH sem hefði hæglega getað fengið á sig fleiri mörk fram að lokaflauti. Tímabilið byrjar hræðilega hjá FH-ingum sem er í næst neðsta sæti Bestu deildarinnar og enn án sigurs," skrifar Brynjar Ingi Erluson, fréttamaður Fótbolta.net.

Jói Kalli þjálfari FH segir í viðtali á RÚV að menn hafi misst hausinn og orðið litlir í sér. Mikinn lærdóm sé hægt að draga ef þessu slæma tapi. Hann segir að þessi úrslit svíði og muni meiða næstu daga. Það sé mikil vinna framundan.
17:01Heimir bjóst ekki alveg við þessu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjóns er mættur í viðtal í þættinum og viðurkennir að hann hafi nú ekki alveg búist við þessum úrslitum. Hann segist bera mikla virðingu fyrir FH en vonast til þess að sigurinn hjálpi Fylkismönnum fyrir komandi leiki í Lengjudeildinni.
16:59Rosalegur sigur Fylkis gegn andlausum FH-ingum
Fyrsti leikurinn sem farið er yfir í þættinum er þessi 5-0 sigur Heimis Guðjónssonar og lærisveina í Fylki gegn fyrrum lærisveinum Heimis í FH. Heldur betur skellur fyrir FH-inga.

Fylkir 5 - 0 FH
1-0 Baldur Kári Helgason ('6 , sjálfsmark)
2-0 Hlynur Sævar Jónsson ('19 )
3-0 Máni Austmann Hilmarsson ('24 )
4-0 Dagur Traustason ('48 )
5-0 Máni Austmann Hilmarsson ('54 )
Lestu um leikinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

16:57Heil og sæl!
Hér munum við fylgjast með drættinum sem verður í bikarþætti sem er hafinn á RÚV 2. Helga Margrét Höskuldsdóttir, Hörður Magnússon og Gunnar Birgisson eru í beinni frá Árbænum þar sem Fylkir vann ótrúlegan 5-0 sigur gegn FH.

16:55 Horfðu á bikarþáttinn beint á RÚV 2
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.