14.06.17 - 17:14
Elvar Geir Magnússon
Bruma til RB Leipzig (Staðfest)

Bruma með boltann í leik með Real Sociedad í fyrra.

Mynd: Getty Images

Þýska úrvalsdeildarfélagið RB Leipzig hefur fengið portúgalska U21-landsliðsmanninn Bruma frá Galatasaray. Bruma skrifaði undir fimm ára samning við Leipzig.
Ralf Rangnick, yfirmaður íþróttamála hjá Leipzig, segir að Bruma falli fullkomlega inn í leikstíl félagsins.

„Bruma er snöggur og tæknilega sterkur. Við erum mjög ánægðir með að fá svona hæfileikaríkan leikmann. Hann gefur okkur fleiri möguleika sóknarlega og gefur okkur meiri vítt í holustöðunni,\" segir Rangnick.
Bruma kom í gegnum akademíu Sporting í Lissabon áður en hann fór til Galatasaray. Hann var lánaður til Gaziantepspor og svo Real Sociedad en skoraði á liðnu tímabili 11 mörk fyrir Galatasaray.
Leipzig verður með í Meistaradeildinni á næsta tímabili eftir að hafa endað í 2. sæti Bundesligunnar á liðnu tímabili.