Fotbolti.net
14.06.17 - 21:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Claude Puel rekinn frá Southampton (Staðfest)

Rekinn eftir eitt tímabil.

Rekinn eftir eitt tímabil.

Canon

Mynd: Getty Images

Southampton hefur ákveðið að reka knattspyrnustjórann Claude Puel eftir minna en eitt ár í starfi.

Hinn 55 ára gamli Puel, sem varði fimm árum sem þjálfari Nice í Frakklandi, tók við Southampton í júní á síðasta ári eftir að Ronald Koeman ákvað að fara til Everton.
Southampton endaði í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar undir stjórn Puel og í febrúar komst liðið í sinn fyrsta stóra úrslitaleik frá árinu 2003. Þá spiluðu dýrlingarnir gegn Manchester United í úrslitum deildabikarsins, en 3-2 tap var niðurstaðan.

„Allir hjá Southampton vilja þakka Claude fyrir vinnu sína síðasta árið,\" segir í yfirlýsingu frá Southampton.

„Við óskum honum velfarnaðar í framtíðinni.\"

Southampton ætlar að ráða nýjan stjóra sem fyrst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.