14.06.17 - 07:00
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
David Stockdale til Birmingham (Staðfest)

Stockdale í leik með Brighton

Mynd: Getty Images

Stockdale í leik með Brighton

Mynd: Getty Images
David Stockdale sem lék með Brighton í vetur þegar þeir komust upp í ensku úrvalsdeildina hefur ákveðið að taka ekki slaginn með þeim í deild þeirra bestu og gengið til liðs við Birmingham.
Stockdale sem áður lék með Fulham, er að renna út á samning hjá Brighton þann 30.júní næst komandi og ákvað að hafna nýju samningstilboði frá þeim og ganga þess í stað í raðir Birmingham sem rétt slapp við fall í Championship deildinni.
Þessi 31 árs gamli markvörður lék 45 leiki með Brighton í Championship deildinni í vetur og hjálpaði þeim að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Þetta er fyrsti leikmaðurinn sem Harry Redknapp fær til Birmingham í sumar og ef við þekkjum Harry Houdini rétt þá er þetta líklega ekki sá síðasti.