14.06.17 - 18:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lindelöf í Man Utd (Staðfest)
Dýrasti varnarmaðurinn í sögu United

Nýjasti leikmaður Man Utd.

Mynd: Vefsíða Man Utd

Nýjasti leikmaður Man Utd.

Mynd: Vefsíða Man Utd
Sænski varnarmaðurinn Victor Lindelöf er genginn í raðir Manchester United, en þetta var tilkynnt fyrir stuttu.
Hann kemur til United frá Benfica fyrir 31 milljón punda.

Hinn 22 ára gamli Lindelöf, sem er sænskur landsliðsmaður, ferðaðist til Manchester í dag og gekkst undir læknisskoðun. Hann stóðst hana og hefur nú skrifað undir samning.
Lindelöf er dýrasti varnarmaðurinn í sögu Man Utd, en áður var það Rio Ferdinand, sem kom til liðsins frá Leeds árið 2002 á 29,1 milljón punda. Þetta er met sem hefur því staðið lengi.
Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við rauðu djöflana, en það er möguleiki á árs framlengingu eftir það.
„Ég er í skýjunum,\" sagði Lindelöf eftir að hafa krotað undir samning í höfuðstöðvum Man Utd.
„Ég hef notið tímans hjá Benfica og lært mikið. Ég hlakka til að spila í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford og fyrir Jose Mourinho,\" sagði Lindelöf, en hann er fjölhæfur varnarmaður.
Jose Mourinho er ánægður með sín fyrstu kaup í sumar.
„Victor er mjög hæfileikaríkur ungur leikmaður, sem á bjarta framtíð fyrir höndum hjá United. Síðasta tímabil sýndi það að við þurfum fleiri kosti og meiri breidd og Victor er sá fyrsti sem kemur í sumar,\" sagði Mourinho kátur.

Join us in saying #HejVictor.
— Manchester United (@ManUtd) June 14, 2017
Welcome to #MUFC, @VLindelof! https://t.co/AWlyoc59QB 🇸🇪 pic.twitter.com/AsrvIIGzS3