14.06.17 - 16:43
Elvar Geir Magnússon
Tolisso til Bayern München (Staðfest)

Corentin Tolisso er orðinn Bæjari.

Mynd: Getty Images

Corentin Tolisso er orðinn Bæjari.

Mynd: Getty Images
Þýskalandsmeistarar Bayern München hafa fengið til sín 22 ára franskan leikmann sem á einn landsleik, miðjumaðurinn Corentin Tolisso kemur frá Lyon.
Tolisso er keyptur á væna summu, 37 milljónir evra, og skrifaði undir fimm ára samning.

Chelsea hafði einnig áhuga á leikmanninum.
Aðalstaða Tolisso er á miðri miðjunni en hann er þó mjög fjölhæfur. Síðan hann braut sér leið inn í aðallið Lyon hefur hann meðal annars spilað sem hægri bakvörður, leikstjórnandi og fölsk nía.
Tolisso var hjá Lyon í tíu ár en hann gekk í raðir félagsins 2007. Hann hefur leikið 160 leiki fyrir Lyon og skorað 29 mörk, þar af 14 á síðasta tímabili.
Hann lék sinn fyrsta landsleik fyrir Frakkland gegn Spðani í mars.
Carlo Ancelotti, stjóri Bayern, hefur verið duglegur að styrkja lið sitt og fengið til sín þá Sebastian Rudy, Niklas Sule og Serge Gnabry. Þá vonast hann enn eftir því að geta landað Marco Verratti frá Paris Saint-Germain.