Fotbolti.net
14.06.18 - 20:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Griezmann áfram hjá Atletico (Staðfest)

Griezmann er ekki að fara neitt!

Griezmann er ekki að fara neitt!

Canon

Mynd: Getty Images

Antoine Griezmann ætlar að vera áfram í herbúðum Atletico Madrid. Hann staðfesti þetta í sjónvarpsþætti sem sýndur var í kvöld. Sjónvarpsþátturinn minnti eilítið á það þegar körfuboltasnillingurinn Lebron James kvaddi Cleveland Cavaliers á sínum tíma og gekk í raðir Miami Heat í NBA-deildinni.

Griezmann sagði frá ákvörðun sinni í sjónvarpsþætti eins og James, en mun ekki yfirgefa félag sitt eins og körfuboltakappinn. Hann ætlar að vera áfram hjá Atletico.
Griezmann var að velja á milli Atletico og Barcelona; hann valdi Atletico.

Hinn 27 ára Griezmann er búinn að vera markahæsti leikmaður Atletico síðastliðin þrjú tímabil. Hann var sterklega orðaður við Manchester United síðasta sumar en ákvað þá að halda tryggð við Atletico. Hann gerir slíkt hið sama núna.

Nú getur Griezmann farið að einbeita sér alfarið að HM með Frakklandi.

Mi afición, mi equipo, MI CASA! @atleti 🔴⚪🔴

Mes supporters, mon équipe, MA MAISON ! @AtletiFR 🔴⚪🔴

My fans, my team, MY HOME!!! @atletienglish 🔴⚪🔴 pic.twitter.com/ByD8Cju5Yb

— Antoine Griezmann (@AntoGriezmann) June 14, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.