Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 14. júní 2021 16:00
Ívan Guðjón Baldursson
Adrian framlengir við Liverpool
Liverpool er búið að staðfesta að spænski markvörðurinn Adrian verður áfram hjá félaginu.

Hinn 34 ára gamli Adrian hefur verið hjá Liverpool síðan 2019 og á í heildina 24 leiki að baki fyrir aðalliðið.

Adrian er varamarkvörður félagsins en þykir ekki nægilega góður til að veita aðalmarkverðinum Alisson Becker raunverulega samkeppni.

Adrian varði mark Liverpool í Meistaradeildinni í vor er liðið datt út gegn Atletico Madrid. Hann þótti ekki standa sig nógu vel í leiknum en Alisson var fjarri vegna meiðsla.


Athugasemdir
banner
banner