Burnley er, samkvæmt heimildum Sky Sports, komið vel á veg í viðræðum við Ashley Young um að ganga í raðir félagsins.
Samningur Young við Inter rann út í sumar en hann varð ítalskur meistari með félaginu í vetur. Hann kæmi því á frjálsri sölu til Burnley.
Samningur Young við Inter rann út í sumar en hann varð ítalskur meistari með félaginu í vetur. Hann kæmi því á frjálsri sölu til Burnley.
Young verður 36 ára og er sagður í viðræðum um eins árs samning sem svo hægt væri að framlengja um eitt ár til viðbótar.
Young ber mikla virðingu fyrir Sean Dyche en Dyche, sem nú er stjóri Burnley, var fyrirliði Watford þegar Young var að hefja sinn feril sem atvinnumaður.
Athugasemdir