„Það leggst fáránlega vel í mig að þetta sé að fara aftur af stað. Ég er búinn að bíða lengi eftir næsta leik, það var kominn mjög góður taktur fyrir hlé og við erum spenntir að halda áfram," segir Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, við Fótbolta.net.
Besta deildin fer aftur af stað í kvöld eftir landsleikjahlé. Stjarnan tekur á móti Val í nokkuð stórum leik, báðum liðum spáð í efri hlutann fyrir mót og eru þar bæði á þessum tímapunkti.
Besta deildin fer aftur af stað í kvöld eftir landsleikjahlé. Stjarnan tekur á móti Val í nokkuð stórum leik, báðum liðum spáð í efri hlutann fyrir mót og eru þar bæði á þessum tímapunkti.
Bregðast öðruvísi við næst
„Það var komið gott tempó, gott spil og góð pressa hjá okkur bæði gegn KR og gegn KA. Við missum svolítið dampinn gegn KA þegar við urðum manni færri. Þar hefði ég getað brugðist öðruvísi við, við bregðumst öðruvísi við næst."
Jökull segir að Guðmundur Kristjánsson sé orðinn klár í slaginn eftir að hafa misst af leiknum gegn KA. „Gummi er klár, Örvar (Eggertsson) var ekki heldur með fyrir norðan, hann er klár. Daníel Finns fékk högg, hefur verið aðeins frá og er aðeins lengur að ná sér af því en við héldum."
„Andri Adolphsson er farinn að æfa á fullu eftir höfuðhöggið inni í Akraneshöllinni. Það er frábært. Staðan er bara mjög góð."
Alltaf að vesenast í einhverju
Hvernig hefur þú nýtt þetta hlé, hefur þú legið yfir leik liðsins eða reynt að kúpla þig aðeins út?
„Bara bæði, maður á erfitt með að kúpla sig út, er alltaf eitthvað að. Við tókum gott frí um síðustu helgi og ég held að flestir hafa náð að kúpla sig vel út. Maður er sjálfur alltaf aðeins að vesenast í einhverju. Við höfum gert bæði, og ég held gert það vel; nýtt hléið mjög vel. Það er góð stemning í liðinu."
Fullt af tækifærum gegn Val
Hvernig horfir Jökull á komandi leik gegn Val?
„Valsliðið er gott og vel þjálfað líka, Túfa hefur gert vel. Þeir eru mjög agaðir, vel skipulagðir og sterkir varnarlega. Þeir fá ekki mikið af færum á sig þegar þeir eru komnir í varnarformið sitt, eru mjög fastir á sínum varnar-prinsippum í sínum varnarleik. Þeir eru svo með afburðasóknarlínu; allir mjög fljótir og miklir markaskorarar. Við erum búnir að fara vel yfir þá og sjáum tækifæri á móti þeim, fullt af tækifærum, sem við vonandi náum að nýta á morgun."
Algjör skepna inn á teignum
Eru þættir sem þú sást í þínu liði í leikjunum gegn KR, leikur sem var búinn snemma, og KA, þar sem Stjarnan var manni færri í seinni hálfleik, sem þú getur notað í þessum leik?
„Alveg eins og Valsmenn eru sterkir þegar þeir vinna boltann, með fljóta menn, þá erum við það líka. Við vorum það í báðum leikjum, meira kannski á móti KR, enda það upplegg (að vera öflugir í 'transition') sterkara í þeim leik. Svo er það andinn sem var í liðinu, það var eitthvað sem ég var mjög ánægður með."
„Við bættum okkur í því að eiga við fyrirgjafir milli þessara tveggja leikja. Sindri (Þór Ingimarsson) var algjör skepna inn á teignum hjá okkur í báðum leikjum. Sammi (Samúel Kári Friðjónsson) hefur líka komið vel inn í hafsentinn. Fótboltinn sem við spiluðum á móti KA áður en við urðum manni færri - og hefðum kannski getað gert áfram - var miklu skemmtilegri (en sá sem liðið hafði sýnt á undan)."
„Við gætum klappað okkur á bakið fyrir fína frammistöðu fyrir norðan, og að mörgu leyti á móti KR, en það er orðið langt síðan og núna þarf bara að gera betur. Við erum að mæta miklu agaðra liði heldur en í síðustu tveimur leikum, öðruvísi lið og öðruvísi áherslur. Valur er með mjög heilsteypt og sterkt lið. Þetta verður allt, allt öðruvísi leikur en síðustu tveir, býst við áhugaverðum og skemmtilegum leik."
„Sá leikur sem við höfum verið líkastir okkur"
Þú nefnir spilamennskuna á móti KA, það var ofboðslega gaman að horfa á Stjörnuna spila, það var eins og mjög mikið í leik liðsins væri að ganga upp.
„Ég er alveg sammála því, mér fannst þetta vera sá leikur sem við höfum verið líkastir okkur. Þegar þú hefur kvartað yfir að við séum leiðinlegir eftir að tímabilinu 2023 lauk...," sagði Jökull á léttu nótunum og vísaði í fyrri samtöl og gagnrýni á leik Stjörnunnar.
„... Þarna fengum við mótherja sem steig á okkur og hreyfingarnar okkar voru bara frábærar. Boltalaus hreyfing var frábær, við hlupum mikið , vorum hreyfanlegir og hugrakkir. Það var líka upp á teningnum á móti KR. Gallinn við þann leik, að einhverju leyti sorglegt, var að hann var búinn eftir tíu mínútur. Auðvitað getum við alveg sagt að einhvern tímann viljum við stíga meira á gasið þegar staðan er orðin þannig, en hitt (að falla aftar) er líka bara eðlilegt. Sá leikur hefði boðið upp á mjög áhugaverðar 90 mínútur ef hann hefði ekki verið 'game over' þetta snemma," segir Jökull.
Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:15 og fer fram á Samsungvellinum í Garðabæ. Alex Þór Hauksson verður í leikbanni í kvöld þar sem hann fékk rautt spjald gegn KA.
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 10 | 6 | 2 | 2 | 19 - 11 | +8 | 20 |
2. Breiðablik | 10 | 6 | 1 | 3 | 17 - 16 | +1 | 19 |
3. Valur | 11 | 5 | 3 | 3 | 24 - 16 | +8 | 18 |
4. Stjarnan | 11 | 5 | 2 | 4 | 20 - 20 | 0 | 17 |
5. Vestri | 10 | 5 | 1 | 4 | 12 - 7 | +5 | 16 |
6. ÍBV | 10 | 4 | 2 | 4 | 12 - 15 | -3 | 14 |
7. KR | 10 | 3 | 4 | 3 | 28 - 23 | +5 | 13 |
8. Fram | 10 | 4 | 0 | 6 | 16 - 17 | -1 | 12 |
9. KA | 10 | 3 | 3 | 4 | 10 - 17 | -7 | 12 |
10. FH | 10 | 3 | 2 | 5 | 15 - 14 | +1 | 11 |
11. Afturelding | 10 | 3 | 2 | 5 | 8 - 13 | -5 | 11 |
12. ÍA | 10 | 3 | 0 | 7 | 12 - 24 | -12 | 9 |
Athugasemdir