Vilja þjálfara Hearts til að fylla í skarðið

McInnes þegar hann stýrði Aberdeen.

Mynd: EPA

McInnes þegar hann stýrði Aberdeen.

Mynd: EPA
Skoska stórveldið Rangers er í viðræðum við Derek McInnes um að taka við sem nýr aðalþjálfari félagsins.
McInnes náði frábærum árangri með Hearts sem komst grátlega nálægt því að hampa sínum fyrsta Skotlandsmeistaratitli síðan 1960 á nýliðnu tímabili.
Rangers er búið að senda formlega beiðni til Hearts um að hefja viðræður við McInnes og er talið að þjálfarinn sé opinn fyrir að skipta um félag. McInnes ber taugar til Rangers eftir að hafa leikið fyrir félagið en hann hafnaði þó að taka við stjórnartaumunum þar þegar tækifærið bauðst árið 2017, en hann var við stjórnvölinn hjá Aberdeen á þeim tíma.
McInnes, sem er 54 ára og lék tvo leiki fyrir A-landslið Skotlands á ferlinum, myndi taka við af Danny Röhl hjá Rangers. Röhl virðist vera á leið til austurríska stórveldisins RB Salzburg.
Þess má geta að Tómas Bent Magnússon fékk góðan spiltíma með Hearts undir stjórn McInnes á tímabilinu, en hann missti af lokavikum leiktíðarinnar vegna meiðsla.

TENGT EFNI