Fotbolti.net
13.06.26 - 21:14
Ívan Guðjón Baldursson

HM: Katar bjargaði stigi gegn Sviss

HM: Katar bjargaði stigi gegn Sviss
Canon

Mynd: EPA

Katar 1 - 1 Sviss
0-1 Breel Embolo ('17, víti)
1-1 Boualem Khoukhi ('94)
Sviss var að ljúka leik gegn Katar í fyrstu umferð í riðlakeppni heimsmeistaramótsins og skoraði Breel Embolo fyrsta mark leiksins á sautjándu mínútu.

Katarar fengu fyrsta færi leiksins afar snemma en mistókst að nýta það. Svisslendingar svöruðu með að skapa nokkur færi áður en vítaspyrna var dæmd fyrir brot innan vítateigs. Mahmoud Abunada, markvörður Katara, var dæmdur brotlegur þegar hann tók Remo Freuler niður eftir að Freuler lyfti boltanum yfir hann. Svisslendingurinn virtist vera rangstæður í aðdragandanum en það hefur verið einhverskonar sjónblekking því VAR-herbergið staðfesti vítaspyrnudóminn eftir langa skoðun.

Embolo skoraði örugglega af vítapunktinum og komust Svisslendingar nokkrum sinnum nálægt því að tvöfalda forystuna, en tókst ekki. Abunada varði nokkrar stórhættulegar marktilraunir Svisslendinga og var aðeins eitt mark sem skildi að á milli liðanna í leikhlé.

Sviss var áfram sterkara liðið í síðari hálfleik en það var minni kraftur í leik liðsins. Katarar gerðu vel að fá ekki annað mark á sig og tókst þeim að jafna metin í uppbótartíma, þvert gegn gangi leiksins.

Boualem Khoukhi var þar á ferðinni þegar hann stangaði fyrirgjöf frá Homam Al Amin í netið. Lokatölur urðu því 1-1, afar svekkjandi fyrir Svisslendinga.

Sviss, Katar, Kanada og Bosnía eru öll með 1 stig eftir fyrstu umferð í B-riðli heimsmeistaramótsins, sem er af mörgum talinn vera gæðaminnsti riðill mótsins.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
HM: Katar bjargaði stigi gegn Sviss
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.