Fotbolti.net
13.06.26 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson

Vinícius Júnior: Alveg sama hversu mikið ég skora

Vinícius Júnior: Alveg sama hversu mikið ég skora
Canon

Mynd: EPA

Kantmaðurinn öflugi Vinícius Júnior er spenntur fyrir upphafsleik Brasilíu á heimsmeistaramótinu.
Vini og félagar spila við Marokkó í spennandi stórleik en þjóðirnar eru einnig með Haítí og Skotlandi í erfiðum riðli sem gæti reynst nokkuð flókinn.

Vinícius er gríðarlega einbeittur að verkefninu sem er framundan þar sem það er draumur hans að hjálpa Brasilíu að endurheimta heimsmeistaratitilinn. Brassar hafa ekki unnið síðan 2002 en þeir eru sigursælasta þjóðin í sögu HM með fimm titla.

„Við erum hérna til þess að vinna heimsmeistaramótið og ekkert annað skiptir máli. Þetta er það eina sem ég er að hugsa um," sagði Vinícius við fjölmiðla og var svo spurður út í framtíð sína hjá Real Madrid. Hann er lykilmaður hjá risaveldinu og aðeins með eitt ár eftir af samning.

„Ég er bara að hugsa um Brasilíu núna. Ég get svarað spurningum um Real Madrid eftir að HM klárast og næsta tímabil byrjar.

„Það eru 8 leikir til þess að vinna mótið og ég get breytt sögu landsins. Ég er ekki að tala um að skora mörk eða gefa stoðsendingar, heldur bara um að spila vel og gefa liðsfélögunum sjálfstraust. Mér er alveg sama hversu mörg mörk ég skora. Eina sem skiptir máli er hvar við endum."


Neymar ekki með í fyrsta stórleik mótsins
TENGT EFNI

Neymar ekki með í fyrsta stórleik mótsins

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Vinícius Júnior: Alveg sama hversu mikið ég skora
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.