Fotbolti.net
13.06.26 - 21:32
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Saint-Maximin til Bandaríkjanna

Saint-Maximin til Bandaríkjanna
Canon

Mynd: EPA

Franski kantmaðurinn Allan Saint-Maximin er búinn að samþykkja þriggja ára samning hjá Charlotte FC sem leikur í bandarísku MLS deildinni.
Saint-Maximin kemur á frjálsri sölu eftir að hafa gert góða hluti með Lens í heimalandinu eftir óvænt félagaskipti þangað í vetrarglugganum.

Frakkinn flúði frá Mexíkó vegna kynþáttafordóma og hjálpaði Lens að enda í öðru sæti frönsku deildarinnar og vinna bikarinn á sögulegu tímabili fyrir félagið.

Hjá Charlotte má finna fyrrum úrvalsdeildarleikmennina Wilfried Zaha, Tim Ream, Ashley Westwood og Harry Toffolo ásamt Liel Abada sem var mikilvægur hlekkur í liði Celtic áður en hann flutti vestur yfir haf.

Liðið er með 21 stig eftir 15 umferðir af deildartímabilinu í MLS.

Saint-Maximin er 29 ára gamall og gerir þriggja ára samning við Charlotte. Hann er búinn að standast læknisskoðun hjá félaginu.

Sjá einnig: Fordæma rasísk ummæli undir kynningarmyndbandinu
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.