Fotbolti.net
13.06.26 - 20:20
Ívan Guðjón Baldursson

Neymar ekki með í fyrsta stórleik mótsins

Neymar ekki með í fyrsta stórleik mótsins
Canon

Mynd: EPA

Brasilíska goðsögnin Neymar verður ekki í landsliðshópnum sem mætir Marokkó í fyrstu umferð riðlakeppni heimsmeistaramótsins.
Liðin eigast við í afar spennandi slag í kvöld en Marokkó er með afar öflugan leikmannahóp og reyndist spútnik liðið á síðasta heimsmeistaramóti. Þar komust fyrrum lærlingar Walid Regragui alla leið í undanúrslitin og urðu fyrsta Afríkuþjóðin til að ná svo langt í sögu HM.

Neymar hefur verið að glíma við meiðsli og er búist við að hann muni æfa með brasilíska landsliðshópnum eftir helgi og koma við sögu í öðrum leik riðlakeppninnar. Sá leikur fer fram að viku liðinni og er gegn Haítí.

Upphafsflautið í viðureign Brasilíu gegn Marokkó er klukkan 22:00 í kvöld á íslenskum tíma og munu opinber byrjunarlið birtast klukkustund fyrir upphafsflautið.

Talað er um viðureign Brasilíu og Marokkó sem fyrsta stórleik heimsmeistaramótsins í ár.

Neymar sagður á góðum batavegi
TENGT EFNI

Neymar sagður á góðum batavegi

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Neymar ekki með í fyrsta stórleik mótsins
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.