Fotbolti.net
14.06.26 - 16:22
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeild kvenna: Fimmti sigur KR - Sá rautt fyrir að hrinda fyrirliðanum á vegg

Anna Björk gerði sigurmark KR undir lok fyrri hálfleiks

Anna Björk gerði sigurmark KR undir lok fyrri hálfleiks

Canon

Mynd: KR

Hertz
FHL 1 - 2 KR
1-0 Alexis Simone Wright ('14 )
1-1 Rakel Grétarsdóttir ('39 )
1-2 Anna Björk Kristjánsdóttir ('45 )
Rautt spjald: Alexis Simone Wright ('45, FHL)
KR-ingar unnu fimmta sigur sinn í Lengjudeild kvenna er liðið lagði FHL að velli, 2-1, í Fjarðabyggðarhöllinni í dag.

FHL, sem féll úr Bestu deildinni á síðasta ári, hefur gengið illa að safna stigum í byrjun tímabilsins á meðan KR-ingar hafa verið á góðu róli.

Alexis Simone Wright kom FHL í forystu á 14. mínútu leiksins, en KR-ingar nú að snúa við taflinu og skora tvö mörk á lokamínútum fyrri hálfleiks.

Rakel Grétarsdóttir jafnaði á 39. mínútu og nokkrum mínútum síðar gerði Anna Björk Kristjánsdóttir sigurmarkið.

Undir lok hálfleiksins fékk markaskorari FHL, Alexis, að líta rauða spjaldið fyrir að hrinda Makyala Soll, fyrirliða KR, í vegginn í höllinni, en leikurinn var stopp í um tuttugu mínútur á meðan hugað var að Soll.

Óhugnanlegt atvik sem skyggði aðeins á annars öflugan sigur KR-inga.

Þetta var fimmti sigur KR-inga á tímabilinu sem er nú í 3. sæti með 15 stig eftir sex umferðir en FHL í 9. sæti með 4 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar6+716
2Grótta6+1015
3KR6+815
4ÍA7+610
5Völsungur708
6Keflavík6+27
7HK6+17
8Selfoss6-37
9FHL6-34
10Tindastóll6-280
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.