Fotbolti.net
14.07.17 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Björn Páls og Óskar Guðjón í Sindra (Staðfest)

Björn Pálsson.

Björn Pálsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Björn Pálsson og Óskar Guðjón Óskarsson hafa gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Sindra á Höfn í Hornafirði.

Sindri er í erfiðri stöðu á botni 2. deildar með þrjú stig en þeir Björn og Óskar ætla að hjálpa liðinu í síðari hluta sumars.
Björn lék síðast með Sindra árið 2007 en hann fór í kjölfarið í Stjörnuna. Árið 2011 gekk Björn í raðir Víkings Ólafsvíkur en hann lék meðal annars með liðinu í Pepsi-deildinni í fyrra og árið 2013.

Björn er þrítugur miðjumaður en hann hefur verið í frí frá fótbolta síðan í fyrra.

Óskar Guðjón kemur aftur til Sindra frá KH þar sem hann hefur spilað undanfarin tvö ár.

Óskar er 32 ára varnarmaður en hann hafði áður leikið með Sindra allan sinn feril en hann á að baki tæplega 200 leiki með Hornfirðingum.

Sindri mætir Tindastóli í 12. umferðinni í 2. deild á morgun en Björn og Óskar verða báðir með liðinu þar.
Óskar Guðjón Óskarsson.

Óskar Guðjón Óskarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.