Fotbolti.net
14.07.17 - 08:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Chalobah til Watford frá Chelsea (Staðfest)

Chalobah er kominn aftur til Watford

Chalobah er kominn aftur til Watford

Canon

Mynd: Getty Images

Nathaniel Chalobah er genginn til liðs við Watford og skrifar hann undir fimm ára samning við félagið. Chalobah kemur frá Chelsea og er kaupverðið óuppgefið.

Chalobah þekkir til hjá Watford en hann lék með liðinu á láni tímabilið 2012-13 og hjálpaði hann Watford að komast í úrslitaleik umspilsins í Championship deildinni. Þá lék hann 38 leiki og skoraði fimm mörk.

Chalobah mun vera í treyju númer 14 hjá Watford.

Englendingurinn ungi sem getur spilað á miðjunni og á vörninni lék 15 leiki undir stjórn Antonio Conte, stjóra Chelsea á síðasta tímabili.

Chalobah er sjötti leikmaðurinn sem Marco Silva fær í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.