Fotbolti.net
14.07.17 - 10:09
Magnús Már Einarsson

Dino Dolmagic í Breiðablik (Staðfest)

Blikar fá liðsstyrk.

Blikar fá liðsstyrk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik hefur samið við serbneska leikmanninn Dino Dolmagic en þetta kemur fram á 433.is.
Dino getur bæði spilað bæði í bakverði og á kanti en hann er 23 ára gamall. Dino hefur verið á reynslu hjá Blikum að undanförnu og í kjölfarið var ákveðið að semja við hann.

Um síðustu helgi var kantmaðurinn Aron Bjarnason í hægri bakverðinum í 1-1 jafntefli Blika gegn ÍBV.

Dino lék síðast með Indija í serbnesku B-deildinni en hann var fastamaður þar á síðasta tímabili.

Elfar Freyr Helgason er einnig á leið aftur í Breiðablik þegar félagaskiptaglugginn opnar á morgun en hann fór til danska félagsins Horsens á láni í byrjun árs.

Næsti leikur Breiðabliks er gegn KA þann 23. júlí en leikur liðsins gegn FH í 11. umferðinni fór fram á dögunum á undan öðrum leikjum í umferðinni.

Bæði Dino og Elfar ættu að verða komnir með leikheimild í leiknum gegn KA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.