14.07.17 - 16:15
Magnús Már Einarsson
Jón Daði í Reading (Staðfest)

Magnús Agnar Magnússon hjá Total Football og Jón Daði eftir undirskrift í dag.

Mynd: Twitter - Total football

Reading hefur keypt íslenska landsliðsframherjann Jón Daða Böðvarsson í sínar raðir frá Wolves. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Jón Daði skrifaði undir þriggja ára samning við Reading en hann verður í treyju númer 23 hjá liðinu. Hann er nú á leið til Hollands þar sem Reading er í æfingaferð.
Jón Daði var ekki í áætlunum Nuno Espirito Santo sem tók við Wolves á dögunum og Reading sýndi honum í kjölfarið áhuga.
Selfyssingurinn var eitt ár í herbúðum Wolves en hann kom til félagsins frá Kaiserlaustern síðastiðið sumar.
Reading var hársbreidd frá því að komast upp í ensku úrvalsdeildina í vor en liðið tapaði gegn Huddersfield í vítaspyrnukeppni í úrslitum umspils. Stjóri liðsins er Jaap Stam fyrrum varnarmaður Manchester United.

✍️ SIGNED! Forward Jón Daði Böðvarsson has completed a move to the Madejski, signing a 3-year deal @ReadingFC -https://t.co/Jnk1rChDh8 🇮🇸 pic.twitter.com/5xG0gy1nnt
— Reading FC (@ReadingFC) July 14, 2017
Big congrats to Jón Daði Böðvarsson with his transfer to Reading. Signed a 3-year contract & will wear Nr. 23 🇮🇸👌 #TeamTotalFootball pic.twitter.com/RHkwoaR2Of
— Total Football (@totalfl) July 14, 2017