Fotbolti.net
14.07.17 - 19:52
Dagur Lárusson

Kári Árna í Aberdeen (Staðfest)

Kári Árnason

Kári Árnason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Árnason, landsliðmaður okkar Íslendinga, var að ganga til liðs við skoska liðið Aberdeen frá kýpverska liðinu Omonia.
Kári hafði gengið til liðs við Omonia aðeins í janúar og stoppaði því stutt við þar en fyrir það var hann að mála hjá Malmö í Svíþjóð.

Kári er að snúa til baka á kunnulegar slóðir en hann spilaði með liðinu tímabilið 2011-2012 og virðist hann vera mjög ánægður með félagskiptin en hann tilkynni félagskiptin á twitter aðgangi sínum

„Ótrúlega ánægður að vera kominn aftur. Takk fyrir allan stuðninginn, ég mun gera mitt allra besta,\" sagði Kári á twitter aðgangi sínum.

Kári skrifaði undir eins árs samning við skoska liðið.

Eins og flestir vita þá er þessi 34 ára gamli leikmaður algjör lykilmaður í vörninni hjá íslenska liðinu og var til að mynda valinn maður leiksins gegn Austurríki á EM í fyrra

Heimild: Aberdeen.co.uk

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.