14.07.17 - 07:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Pétur Óskars og Kifah í Hugin (Staðfest)

Huginn hafa styrkt sig fyrir toppbaráttuna

Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonar

Huginn á Seyðisfirði hafa styrkt sig fyrir toppbaráttuna sem er framundan í 2. deild karla en Pétur Óskarsson og Kifah Moussa Mourad eru komnir til félagsins.
Huginn er í mikilli toppbaráttu um sæti í Inkasso-deildinni en Huginn féll þaðan á síðasta tímabili.
Huginn er í þriðja sæti deildarinnar, með 22 stig, einu stigi á eftir toppliðunum Njarðvík og Magna.
Kifah er 17 ára strákur sem kemur frá nágrönnunum Leikni Fáskrúðsfirði. Kifah lék 8 leiki í Inkasso-deildinni í fyrra með Leikni F. og skoraði eitt mark og þá hefur hann leikið þrjá leiki með liðinu í sumar.
Pétur Óskarsson þekkir hvern krók og kima á Seyðisfirði en hann hefur verið á talsverðu flakki á milli Vatnaliljunnar og Hugins. Pétur spilaði með Hugin í Inkasso-deildinni í fyrra og spilaði þar 18 leiki og skoraði eitt mark. Hann snéri svo aftur til Vatnaliljunnar í vetur og hefur spilað 10 leiki í fjórðu deildinni í sumar.
Báðir leikmennirnir mega spila með Huginn þegar liðið mætir Njarðvík í toppbaráttuslag á morgun.