Fotbolti.net
14.07.17 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Real Madrid fær besta manninn á EM U21 (Staðfest)

Real Madrid fær besta manninn á EM U21 (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid hefur keypt miðjumanninn Dani Ceballos frá Real Betis á 18 milljónir evra (16 milljónir punda).

Hinn tvítgui Ceballos var valinn besti leikmaður mótsins þegar Spánn fór í úrslit á EM U21 árs landsliða í sumar.
Ceballos á að fylla skarð James Rodriguez sem fór til Bayern á láni í vikunni.

Barcelona vildi einnig fá Ceballos en hann hefur líka verið áður orðaður við Liverpool.

Þrátt fyrir ungan aldur þá hefur Ceballos leikið 105 leiki með aðalliði Betis þar sem hann hefur skorað sjö mörk og lagt upp níu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.