14.07.17 - 16:45
Magnús Már Einarsson
Terrance aftur í markið hjá Haukum (Staðfest)

Terrance í leik með Gróttu í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Terrance í leik með Gróttu í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar hafa fengið markvörðinn Terrance William Dieterich á láni frá Gróttu.
Hinn bandaríski Terrance þekkir vel til á Ásvöllum því hann lék með Haukum í fyrra og hitteðfyrra áður en hann gekk í raðir Gróttu í vetur.
Trausti Sigurbjörnsson hefur varið mark Hauka í sumar en hann fór meiddur af velli eftir tuttugu mínútur í 2-1 sigrinum á Selfossi í vikunni.

Árni Ásbjarnarson kom inn á fyrir Trausta í þeim leik en Haukar hafa nú bætt Terrance við hópinn.
Terrance var sjálfur búinn að missa sæti sitt í marki Gróttu til Stefáns Ara Björnssonar.
Haukar mæta Þróttir R. í Inkasso-deildinni á morgun og Terrance er kominn með leikheimild fyrir þann leik.