Fotbolti.net
14.07.18 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Spænskur framherji í Fjarðabyggð (Staðfest)

Fjarðabyggð aðeins skorað 12 mörk í 2. deild í sumar

Fjarðabyggð var að bæta við sig sóknarmanni.

Fjarðabyggð var að bæta við sig sóknarmanni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Spænski framherjinn Jose Gabriel Pinera Hortelano er kominn til landsins og er búinn að semja við Fjarðabyggð. Hann mun spila með liðinu á seinni hluta leiktíðarinnar.
Fjarðabyggð er í 2. deild og er ekki langt frá efstu tveimur sætunum, markmiðið er eflaust að komast upp í Inkasso-deildina.

Jose Gabriel Pinera á að hjálpa með það, að komast upp um deild, en hann er 26 ára gamall og kemur frá Estudiantes de Murcia á Spáni þar sem hann spilaði síðast.

Fjarðabyggð hefur aðeins skorað 12 mörk í 2. deildinni í sumar en það er alls ekki nægilega gott. Jose Gabriel er væntanlega fenginn til að bæta sóknarleikinn sem hefur augljóslega ekki verið nægilega góður hingað til í sumar.

Fjarðabyggð spilar við Þrótt Vogum í dag en Spánverjinn verður ekki löglegur fyrr en á sunnudaginn, þegar félagskiptaglugginn opnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.