Fotbolti.net
14.08.16 - 15:40
Elvar Geir Magnússon

Drullað yfir Moreno á Twitter - Prumpublaðra betri

Drullað yfir Moreno á Twitter - Prumpublaðra betri
Canon

Mynd: Getty Images

Þetta er erfiður dagur fyrir Alberto Moreno, vinstri bakvörð Liverpool.

Moreno hefur átt martraðahálfleik í leik Arsenal og Liverpool sem nú stendur yfir. Fyrst braut hann af sér á einstaklega klaufalegan hátt og Arsenal uppskar vítaspyrnu.

Theo Walcott klúðraði vítinu en bætti upp fyrir það skömmu síðar en Moreno var þá algjörlega út úr stöðu.
Moreno fær svo sannarlega að heyra það á Twitter eins og sjá má hér að neðan.

Fylgst er með gangi mála í leiknum í Heimshorninu á forsíðu.

Væri betra að hafa prumpublöðru heldur en Moreno í vinstri bakverðinum

— Sigurbergur Elisson (@sigurbergur23) August 14, 2016


Moreno flottur. Ánægður með hann. Alvöru leikmaður. Á skilið að starta alla leiki á þessu seasoni.

— Egill Einarsson (@EgillGillz) August 14, 2016


ég er ekki í formi og ég er réttfættur en ég er samt betri vinstri bakvörður en Moreno

— Halldor I. Sævarsson (@halldoringi) August 14, 2016


Spá: Liverpool eyðir £20-30m í vinstri bak á næstu dögum. #kopis #panicbuy

— Kristján Atli (@kristjanatli) August 14, 2016


Jafn hissa að sjá að Moreno se ur stöðu i markinu hja arsenal eins og að palli bóndi hafi ekki gist heima hja ser i nott #ó

— Óskar Smári (@oskarsmari7) August 14, 2016


Moreno, Moreno, Moreno.. Seriously Klopp? Gæinn er farinn í höfðinu.

— Magnus Thorir (@MagnusThorir) August 14, 2016


Moreno til sölu, kostar eina tölu #fotboltinet #YNWA

— Steingrímur Sævarr (@frettir) August 14, 2016


Moreno 🙈

— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) August 14, 2016


Klopp verður að kaupa vinstri bakvörð, Moreno er tímasprengja

— Hörður S Jónsson (@hoddi23) August 14, 2016


Kann Moreno bara alls ekki fótbolta??

— Hjörtur Hjartar (@hjorturh) August 14, 2016


Klopp skiptir Moreno útaf í hálfleik og hann spilar aldrei aftur leik fyrir Liverpool (staðfest) #fotboltinet

— Hlynur Ólafsson (@HlynurOlafs) August 14, 2016


Dóttir mín er krútt og töff með tígó, Moreno og Firminho eru það ekki. #messan #fotboltinet

— Viktor Þorvalds (@ViktorRagnar) August 14, 2016


Vá hvað Moreno er mikil byrði á Liverpool vörninni. 2 mistök á innan við mín. Klopp ætti að íhuga 3-5-2. #fotboltinet #fotbolti #enski365

— Hafsteinn Árnason (@h_arnason) August 14, 2016


Moreno er bara næst versti leikmaður Liverpool það sem af er þessum leik, Lallana er á öðru leveli. Úff

— Einar Matthías (@einarmatt) August 14, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.