14.08.17 - 22:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðný Árnadóttir semur við FH (Staðfest)

Guðný hefur átt gott sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðný hefur átt gott sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Guðný Árnadóttir hefur framlengt samning sinn við FH. Hún skrifaði í kvöld undir nýjan þriggja ára samning.
Guðný hefur verið lykilmaður hjá FH síðastliðin þrjú tímabil.
Hún byrjaði að spila með meistaraflokki FH sumarið 2015, en það sumar vann liðið sér inn sæti í Pepsi-deildinni.
Guðný hefur verið lykilmaður hjá FH síðastliðin þrjú tímabil.
Hún byrjaði að spila með meistaraflokki FH sumarið 2015, en það sumar vann liðið sér inn sæti í Pepsi-deildinni.
Á síðasta tímabili spilaði Guðný flesta leiki FH þegar liðið hélt sér í Pepsi-deild kvenna. Á þessu tímabili hefur hún spilað alla leiki liðsins þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára gömul. Hún hefur líka skorað fjögur mörk í sumar, þar á meðal glæsilegt mark gegn Haukum á dögunum.
Á undanförnum þremur árum hefur Guðný spilað 23 landsleiki með U17 ára landsliðinu og þrjá með U19 ára liðinu.
„Það er FH mikið ánægjuefni að Guðný hafi ákveðið að skrifa undir nýjan samning við félagið. Meistaraflokkur kvenna hefur þegar bætt árangur liðisins á síðasta keppnistímabili og þessi undirskrift er til marks um að FH ætlar sér ennþá stærri hluti með kvennaliðið á næstu árum,\" segir í tilkynningu á fhingar.net.

Guðný Árnadóttir skrifaði í dag undir nýjan þriggja ára samning við FH. Það eru gleðifréttir fyrir okkur FH-inga. #ViðerumFH #fotboltinet pic.twitter.com/RIGVzL0BIQ
— FHingar.net (@fhingar) August 14, 2017
Hversu mikilvægt #ThreeMoreYears #ViðerumFH #fotboltinet https://t.co/JJb2TLVzDW
— Árni Freyr Helgason (@arnifreyr8) August 14, 2017