14.08.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leandro Bacuna til Reading (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Reading hefur keypt hinn fjölhæfa Leandro Bacuna frá Aston Villa.
Bacuna skrifaði undir fjögurra ára samning við Reading, en þar verður hann liðsfélagi Jóns Daða Böðvarssonar.

Bacuna, sem er að upplagi miðjumaður, spilaði 131 leik fyrir Aston Villa, en hann var þar í fjögur ár. Hann byrjaði fyrsta leik liðsins í Championship-deildinni gegn Hull, en nú er hann farinn.
Hann gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Reading gegn sínum gömlu félögum í Aston Villa þegar liðin mætast á þriðjudaginn.
„Hann hefur spilað í ensku úrvalsdeildinni og kemur með gæði til okkar,\" sagði Jaap Stam, stjóri Reading, um komu Bacuna.