Arturo Vidal, leikmaður Barcelona, hefur sent skilaboð til síns gamla félags, Bayern Munchen, fyrir leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Arturo Vidal spilaði með Bayern Munchen á árunum 2015-2018 en gekk svo til liðs við Barcelona. Hann segir að Bayern sé að fara mæta besta liði heims.
„Þeir eru að fara spila gegn Barca, ekki gegn liði í þýsku úrvalsdeildinni. Þeir eru að fara spila gegn besta liði heims," sagði miðjumaðurinn öflugi.
Leikurinn í kvöld hefst kl.19 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en sigurvegarinn úr þessari rimmu mætir annað hvort Manchester City eða Lyon í undanúrslitum.
Athugasemdir