Fotbolti.net
13.08.26 - 23:02
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Lykilmaður kólumbíska landsliðsins á leið til Juventus

Lykilmaður kólumbíska landsliðsins á leið til Juventus
Canon

Mynd: EPA

Ítalska félagið Juventus hefur náð munnlegu samkomulagi við Bologna um kaup á kólumbíska miðverðinum Jhon Lucumi.
Juventus greiðir Bologna 20 milljónir evra fyrir Lucumi sem gengst undir læknisskoðun hjá félaginu um helgina.

Lucumi er 28 ára gamall og hefur leikið með Bologna frá árinu 2022. Hann varð meðal annars ítalskur bikarmeistari með félaginu.

Varnarmaðurinn er fastamaður í kólumbíska landsliðinu og lék alla leiki þess á heimsmeistaramótinu í sumar.

Lucumi er mikil styrking fyrir Juventus sem ætlar sér aftur í Meistaradeildina. Liðið hafnaði í sjötta sæti á síðustu leiktíð, aðeins tveimur stigum frá fjórða sætinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.