Fotbolti.net
13.08.26 - 23:13
Brynjar Ingi Erluson

Man City ekki búið að bjóða í Enzo

Man City ekki búið að bjóða í Enzo
Canon

Mynd: EPA

Manchester City hefur ekki enn lagt fram tilboð í Enzo Fernandez, miðjumann Chelsea.
Chelsea hefur gefið Man City og öðrum áhugasömum félögum frest til klukkan 16:00 á morgun til að leggja fram tilboð í Enzo Fernandez.

Berist ekkert tilboð fyrir þann tíma verður Argentínumaðurinn ekki seldur áður en félagaskiptaglugginn lokar.

Man City hefur mikinn áhuga á Enzo og er sagt íhuga að láta til skarar skríða.

City vinnur að því að selja Rodri og Tijjani Reijnders en félagið ætti að fá að minnsta kosti 110 milljónir punda fyrir þá samanlagt.

Enn er búist við tilboði frá City en staðan ætti að skýrast betur í fyrramálið.

Enzo Maresca, stjóri Man City, vill ólmur endurnýja kynni sín við Enzo sem hann þjálfaði í eitt og hálft ár hjá Chelsea. Fernandez er 25 ára gamall og verið á mála hjá Lundúnafélaginu frá 2023.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.