14.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Verður Ferguson liðsfélagi Mikaels?

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska félagið Genoa hefur sett sig í samband við Brighton vegna írska framherjans Evan Ferguson.
Genoa hefur mikinn áhuga á að fá hinn 21 árs gamla Ferguson að láni út tímabilið.
Hann lék með Roma á láni á síðustu leiktíð og skoraði fimm mörk í 22 leikjum í öllum keppnum.
Sky Sports segir Genoa og Brighton eiga í viðræðum og því raunhæfar líkur á að Ferguson snúi aftur til Ítalíu. Þar yrði hann liðsfélagi íslenska landsliðsmannsins Mikaels Egils Ellertssonar.
Ferguson á þrjú ár eftir af samningi sínum við Brighton en hefur ekki leikið með liðinu síðan tímabilið 2024-2025.
Írinn sló í gegn með Brighton tímabilin tvö þar á undan áður en erfið meiðsli settu strik í reikninginn.
Hann á þá 26 leiki og átta mörk með írska landsliðinu, en hann hefur verið mikilvægur hluti af liðinu síðan Heimir Hallgrímsson tók við fyrir tveimur árum.