Fotbolti.net
14.09.16 - 20:35
Jóhann Ingi Hafþórsson

4. deild: KFG fylgir Berserkjum í 3. deild (Staðfest)

KFG fagnar eftir leikinn í kvöld.

KFG fagnar eftir leikinn í kvöld.

Canon

Mynd: Þorsteinn Ólafs

KH 1 - 2 KFG - Samanlagt: 3-5
1-0 Halldór Rafn Halldórsson (\'11)
1-1 Aron Grétar Jafetsson (\'23)
1-2 Jóhann Ólafur Jóhannsson (\'80)
Rautt spjald : Björn Öder Ólason , KFG (\'92)
KFG vann KH á Valsvelli í kvöld. Með sigrinum komst KFG upp í 3. deildina.

Fyrri leikur liðanna fór 3-2 fyrir KFG og vinna strákarnir úr Garðabæ því samanlagt, 3-5.

Kvöldið byrjaði vel fyrir KH en Halldór Rafn Halldórsson kom þeim yfir í fyrri hálfleik.

Aron Grétar Jafetsson var ekki lengi að jafna og var staðan 1-1 í hálfleik.

Jóhann Ólafur Jóhannsson skoraði svo sigurmarkið tíu mínútum fyrir leikslok og þar við sat.

Smelltu hér til að lesa nánar um leikinn
Jóhann Ólafur Jóhannsson fagnar sigurmarkinu.

Jóhann Ólafur Jóhannsson fagnar sigurmarkinu.

Canon

Mynd: Þorsteinn Ólafs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.